Fréttir

Körfubolti | 19. mars 2005

Tap gegn ÍR eftir lélegustu frammistöðu Keflavíkur á heimavelli í mörg ár

Stuðningsmenn Keflavíkur vissu vart hvort þeir ættu að hlæja eða gráta í hálfleik gegn ÍR fyrr í dag. Gestirnir með 16 stiga forskot og útlitið dökkt. Seinni hálfleikur var pínulítið skárri, en sóknarleikurinn var áfram arfaslakur og niðurstaðan 8 stiga tap, 80-88. ÍR hefur því 1-0 forystu í einvíginu en þrjá sigurleiki þarf til að komast í úrslitin. Næsti leikur er á mánudaginn í Seljaskóla.

Það verður að segjast hreint út að Keflavíkurliðið átti í dag sinn allra lélegasta heimaleik til margra ára. Einbeitingin enginn, baráttuviljinn lítill og skynsemin ekki til staðar. Ekki er hægt að útskýra af hverju það stafaði, en niðurstaðan var augljós. Menn gripu illa boltann, hittu ekki úr opnum færum og hlupu ekki aftur í vörn. ÍR-ingar mættu hins vegar með rétt hugarfar í leikinn, börðust allan tímann og uppskáru verðskuldaðan sigur.

Heimasíðan er ekki í nokkrum vafa um að Keflavíkurliðið sé mun sterkara og hæfileikaríkara en ÍR-liðið, en það skiptir bara engu máli ef baráttan er ekki til staðar. Elentínus var skástur í slöku liði heimamanna.

En þetta er bara einn ósigur og strákarnir eru eflaust fúlir yfir frammistöðunni. Nú taka þeir sig saman í andlitinu og mæta grimmir til leiks í Seljaskóla á mánudag og sýna þar vonandi sitt rétta andlit. Sigur í þeim leik kæmi okkar mönnum aftur á sporið.

ÁFRAM KEFLAVÍK!