Fréttir

Körfubolti | 17. október 2004

Tap gegn Snæfelli, 87-82

Það var viðbúið að erfitt yrði að sækja gull í greipar þeirra Snæfellinga, enda firnasterkir á heimavelli. Okkar menn byrjuðu þó af krafti og leiddu m.a. 16-8 í fyrsta leikhluta. Mike "nýji" lenti snemma í villuvandræðum og fékk sína 3ju villu strax í fyrsta leikhluta. Hann skoraði 11 stig í leiknum og virðist vera prýðilegur leikmaður, en er enn frekar langt frá því að vera í góðu leikformi.

Leikurinn var jafn allan tímann og aðeins skildu tvö stig liðin þegar 24 sekúndur voru eftir. Siguður Þorvaldsson reyndist banabiti okkar manna í kvöld því hann setti grimmt niður þrista. Lokastaðan var fimm stiga tap, 87-82.

Okkar menn voru ekki að leika vel í kvöld, sérstaklega var varnarleikurinn langt frá því sem hann þarf að vera. Gegn svæðisvörninni skutu Snæfellingar niður þristum og gegn maður-á-mann vörninni óðu þeir framhjá okkar mönnum og opnuðu vörnina upp á gátt. Sóknarlega vorum við heldur ekki í stuði, þó vissulega hafi Anthony verið sprækur, en hann setti 26 stig. Jonni skoraði 8, Arnar Freyr 12, Gunni Einars 9 og Mike 11.

Þegar tölfræði leiksins verður klár má finna hana hér.

Næsti leikur er á heimavelli gegn Haukum á fimmtudaginn. Vonandi kemst Mike fljótt í form og svo vonumst við eftir að liðið verði komið á gott skrið eftir tvær vikur eða svo, því þá er fyrsti leikurinn í Evrópukeppninni.