Tap hjá körlum og konum
Bæði lið Keflavíkur þurftu að lúta í lægra haldi í kvöld og í gærkvöldi. Eftirfarandi umfjöllun um karlaleikinn er fengin af vef Víkurfrétta (www.vf.is):
Leikurinn var jafn lengst framan af. Stjarnan leiddi eftir fyrsta leikhluta, 14-11 og í hálfleik hafði hún fjögurra stiga forystu, 37-33.
Leikurinn var í járnum í þriðja leikhluta. Keflvíkingar komust yfir og náðu fimm stiga forystu, 50-45. Stjörnumenn börðust hins vegar vel og náðu að komast yfir á nýjan leik.
Leikurinn var jafn í upphafi síðasta fjórðungs en Garðbæingar náðu aftur undirtökunum í leiknum, voru grimmir í vörninni, vörðu skot og stálu boltum. Þeir uppskáru því góðan sigur í lokin, 82-73 eins og áður segir.
Fannar Helgason átt góðan leik hjá Stjörnunni, skoraði 20 stig, tók 18 fráköst og átti 8 stoðsendingar. Justin Shouse skoraði 24 stig. Í liði Keflavíkur skoraði Gunnar Einarsson 18 stig og Hörður Axel Vilhjálmsson 17.
Stelpurnar lutu í lægra haldi gegn Vals-stúlkum fyrr í kvöld. Lokatölur voru 79-75 fyrir Val. Hrund Jóhannsdóttir skoraði 21 stig fyrir Val og Sakerna Young kom þar næst með14 stig. Í liði Keflavíkur var Viola Beybeyah stigahæst með 28 stig og 12 fráköst, en á eftir henni kom Marín Karlsdóttir með 12 stig.
Þetta var þriðji tapleikur Keflavíkur-kvenna í jafnmörgum leikjum. Þær verma nú botnsætið í Iceland Express deild kvenna ásamt Njarðvíkur-stúlkum, en Njarðvíkur-stúlkur eiga einn leik til góða.