Fréttir

Karfa: Karlar | 28. september 2009

Tap hjá kvenna- og karlaliði

Í kvöld fóru fram tveir leikir í Toyota Höllinni í Powerade bikarkeppninni.

Í fyrri leiknum mættu Keflavíkur-stúlkur þeim gulklæddu í Grindavík og lutu þær í lægra haldi, 41-49. Keflavíkur-stúlkur áttu prýðis fyrri hálfleik þar sem þær héldu forystunni jafnt og þétt. Í seinni hálfleik fór að síga á leik þeirra og í síðasta leikhluta áttu þær í mesta basli með að koma knettinum ofan í körfuna. Grindavíkur-stúlkur nýttu sér þetta og náðu þær forystu sem þær héldu út til leiksloka. Lokatölur eins og fyrr segir, 41-49 fyrir Grindavík. Hjá Keflavík var Birna Valgarðsdóttir atkvæðamest með 24 stig og 7 fráköst.

Hjá körlunum áttust við Keflavík og Njarðvík í hörkuleik. Bæði lið gáfu aldrei eftir og skiptust liðin reglulega á forystunni í leiknum. Þegar um 30 sekúndur lifðu eftir af leiknum átti Njarðvík sókn og leiddu þeir með einu stigi. Góð vörn Keflavíkur gerði það að verkum að boltinn barst til Magnús Gunnarssonar vel fyrir utan þriggja stiga línuna þegar um 2 sekúndur voru eftir af skotklukku og var brotið klaufalega á honum í skoti. Það gerði það að verkum að Maggi fór á vítalínuna og skoraði úr tveimur af þremur skotum sínum. Keflavík tók leikhlé og voru rúmar 5 sekúndur eftir af venjulegum leiktíma, þar sem Njarðvík leiddi með þremur stigum. Keflavík tók svo innkast frá miðju sem klúðraðist algjörlega og barst boltinn í hendur Njarðvíkinga sem fögnuðu sigri. Hjá Keflavík var Sigurður Þorsteinsson atkvæðamestur með 20 stig og 11 fráköst en hjá Njarðvík voru Magnús Þór Gunnarsson og Jóhann Árni Ólafsson með 17 stig hvor.

Þar með er keppni Keflavíkurliðanna lokið í Powerade bikarkeppninn og ekkert annað hægt að gera en að einblína á komandi tímabil. Þess ber að geta að hvorugur kaninn spilaði með Keflavíkurliðunum í kvöld þar sem ekki tókst að útvega leikheimild í tæka tíð.