Fréttir

Karfa: Konur | 17. desember 2009

Tap hjá stelpunum gegn KR

KR lagði Keflavík í Iceland Express deild kvenna fyrr í kvöld og voru lokatölur 70-55. Leikurinn fór fram á heimavelli KR og sáu Keflavíkur-stúlkur aldrei til sólar í leiknum. Þær lentu undir strax á fyrstu mínútum leiksins og náðu einungis að minnka forskotið í 7 stig í öllum leiknum, lengra komust þær ekki. Þegar um 5 mínútur lifðu eftir af leiknum, tókst Keflavíkur-stúlkum þó að skora 13 stig gegn einu stigi KR-stúlkna.

Hjá Keflavík var Birna Valgarðsdóttir atkvæðamest með 22 stig, en Kristi Smith skoraði 14 stig. Hjá KR var Unnur Tara Jónsdóttir atkvæðamest með 15 stig, en á eftir henni kom Jenny Pfeiffer-Finora með 12 stig.