Fréttir

Körfubolti | 4. janúar 2004

Tap í Hveragerði

Meistaraflokkur karla átti einn sinn lélegasta leik í vetur þegar liðið tapaði gegn Hamri í Hveragerði fyrr í kvöld, 94-91. Sverrir Þór (16 stig) og Derrick (36 stig, 27 fráköst) áttu góðan dag, en flestir voru langt undir getu eins og reyndar liðsheildin.

Það kemur alltaf jafn leiðinlega á óvart hve misjafnt Keflavíkurliðið getur verið. Það getur lagt að velli atvinnumannalið frá stórþjóðum Evrópu með stórkostlegri frammistöðu og svo getur það leikið svo illa að meðal firmalið gæti veitt því harða keppni eins og dæmin sanna. Enda er ekki erfitt að skora gegn liði sem leikur ekki vörn. Hamarsmenn tóku t.d. 22 sóknarfráköst sem er fáheyrt.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Með þessum ósigri dettur liðið niður í 4-5 sæti deildarinnar og þar erum við hreint ekki í nógu góðum málum. Þurfum að hífa okkur upp um nokkur sæti hægt og rólega. Vonandi fer nú slöku leikjunum að fækka, þar sem alvaran eykst með viku hverri. Næsta fimmtudag er hörkuleikur gegn Haukum og skulum við vona að menn noti dagana fram að þeim leik til að ná áttum, því annars gæti Bikardraumurinn endað snemma í ár.

Við höfum þó fulla trú á okkar mönnum, þótt þeir detti niður öðru hverju, og búumst við þeim grimmum og ákveðnum gegn Haukum í bikarslag á fimmtudaginn.