Fréttir

Körfubolti | 1. desember 2003

Tapað - fundið: Hvert fór Keflavíkurliðið?

Það var ekki sama Keflavíkurliðið sem mætti í Röstina í kvöld og við höfum séð leika svo vel í Evrópukeppninni upp á síðkastið. Einhverra hluta vegna voru leikmenn ekki tilbúnir í alvöruleik. Afleiðingin var augljós, því Grindvíkingar völsuðu inn og út um Keflavíkurvörnina að vild og Keflvíkingar voru á hálfum hraða. Og á hálfum hraða er ekki hægt að spila körfuboltaleik gegn liði eins og Grindavík. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 23-13 og í hálflek var hún 52-34. Mestur fór munurinn upp í 24 stig um miðjan 3ja leikhluta, en þá var eins og strákarnir vöknuðu loks af værum svefni. Falur þjálfari fór fyrir sínum mönnum og tók að raða niður þristum og vörnin hertist. Við upphaf síðasta leikhluta var munurinn 14 stig, 74-60. Grindvíkingar tóku báða Kanana af leikvelli á sama tíma og þá veiktust þeir verulega. Keflavík gekk á lagið og náði meira að segja að jafna leikinn í stöðunni 90-90 þegar aðeins sjö sekúndur voru eftir. En þá var Darryl Lewis, langbesti maður vallarins, á vítalínunni og setti niður bæði vítin. Sá tími sem eftir var dugði ekki til að skora og því tapaðist leikurinn með tveimur stigum, 92-90.

Ekki er hægt að hrósa Keflvíkingum mikið fyrir þennan leik. Falur var jú sjóðheitur og setti 24 stig, þar af 18 í seinni hálfleik. Hann hitti úr 7 af 11 3ja stiga skotum sínum og hreinlega skaut okkur aftur inn í leikinn í lokin. Derrick barðist eins og alltaf, skoraði 28 stig og hirti 12 fráköst, en flýtti sér stundum um of í skotum sínum og nýtti færin ekki jafn vel og oft áður. Gunnar Stefánsson átti mjög góða innkomu og skoraði 14 stig, skoraði úr 6 af 7 skotum sínum. Jonni barðist líka vel og tók 9 fráköst en honum voru mislagðar hendur í sókninni og Halldór var ágætur þann stutta tíma sem hann var inná. En neikvæðu þættirnir voru mun fleiri. Í fyrsta lagi var það hugarfarið sem var hreinlega ekki til staðar. Menn voru ekki tilbúnir og varnarleikurinn skelfilegur, lengst af. Síðan voru menn eins og Magnús og Gunnar langt frá sínu besta. Davíð náði ekki að segja mark sit á leikinn. Sverrir lék allt of lítið, sérstaklega eftir frábæra frammistöðu í leiknum gegn Madeira. Það voru mistök hjá þjálfaranum að nota Sverri ekki meira. Og svo var Nick Bradford skelfilegur í leiknum, skoraði aðeins 6 stig og tapaði boltanum 8 sinnum, barðis lítið og bjó ekkert til.

Grindavík þurfti ekki að hafa mikið fyrir hlutunum til að byrja með, því mótstaðan var engin. Darryl skoraði að vild og Páll Axel var heitur. Eins var Dan Trammel góður og tróð ansi oft yfir Keflavíkurvörnina. Grindavík missti þó móðinn þegar okkar menn byrjuðu að spila vörn, og það segir manni að úrslit leiksins hefðu orðið allt önnur ef Keflvíkingar hefðu lagt sig fram í leikinn. En "ef" og "hefði" skipta víst engu máli . . .

Hvað um það, nú eru tveir deildarleikir framundan, gegn KR og Þór, og mikilvægt að ná 4 stigum úr þeim leikjum. Strákarnir hafa sýnt það í vetur að þeir geta leikið glimrandi körfubolta, en til að svo sé verða menn að vera tilbúnir í 40 mínútna hörkuleik. Ekki bara 30 fyrstu mínúturnar eða 10 síðustu mínúturnar, heldur allan leikinn.

ÁFRAM KEFLAVÍK!!