Telma Lind á leið út í heim eftir borgarskot
Leikmaður kvennaliðs Keflavíkur datt heldur betur í lukkupottinn á leik Keflavíkur og Tindastóls fimmtudaginn síðastliðinn.
Telma Lind Ásgeirsdóttir fórnaði sér í boltann í áhorfendastúkunni og fékk að spreyta sig á borgarskoti Iceland Express.
Hún mætti svellköld á gólfið og negldi boltann spjaldið ofan í. Telma hefur æft körfubolta í háa herrans tíð og telur það
kannski ekki til tíðinda að hún hitti úr þriggja stiga skoti. Þetta skot gaf henni hins vegar ferð á einn af áfangastöðum
Iceland Express. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur óskar Telmu til hamingju með vinninginn.