Tendrað á grillinu kl. 18:00
Stuðningsmannaklúbbur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur mun aldeilis hitta á kræsingar í kvöld gegn vægu gjaldi. Grillið verður kynt kl. 18:00 og er Þorgrímur Árnason grillstjóri. Farið verður yfir stöðu mála í VIP herberginu góða og allir hvattir til að láta sjá sig og eiga gott spjall saman.
Hamborgarar verða á grillinu og gos með.