Þá er komið að því: STÓRLEIKUR á Sunnubrautinni í kvöld þegar Keflavík mætir Toulon í síðasta heimaleik riðlakeppninnar í Bikarkeppni Evrópu
Fjórði leikur Keflavíkur í Evrópukeppninni er á dagskrá. Fyrstu þrír leikirnir hafa verið gríðarskemmtilegir og sérstaklega hefur árangurinn verið glæsilegur á heimavelli, þar sem Keflavík hefur lagt bæði Ovarense og Madeira að velli. Nú er komið að Frökkunum frá Hyeres-Toulon sem unnu Keflavík fyrir tæpum mánuði í Frakklandi, 107-91. Við eigum harma að hefna og þurfum á stórleik að halda til að sigra frönsku risana.
Frakkarnir hafa leikið fjóra leiki og unnið tvo þeirra. Þeir lögðu Keflavík og Madeira á heimavelli, en töpuðu fyrir Madeira á útivelli og töpuðu líka mjög óvænt fyrir portúgalska toppliðinu Ovarense á heimavelli. Þeir hafa því fimm stig í riðlinum, en Keflavík og Ovarense fjögur, en Toulon hafa leikið einum leik fleira (ath. að eitt stig fæst fyrir tap og tvö fyrir sigur).
Ef marka má fyrri leikinn gegn Toulon þá er ljóst að varnarleikur okkar manna verður að vera grimmari nú en síðast þar sem þeir fengu of mikið af góðum færum nálægt körfunni. Ef þeir komast þangað óáreittir verða þeir illviðráðanlegir þar sem þeir hafa, líkt og hin liðin, líkamlega yfirburði gagnvart okkar mönnum. En okkar menn geta leikið aggressíva vörn og þótt bakvörðurinn Jason Rowe sé snöggur og góður með boltann, þá eru hinir ekki jafn leiknir og gætu gert mistök ef pressan verður næg. Einnig eiga stórir og þungir leikmenn oft erfiðara með að hlaupa hratt upp og niður völlinn allan tímann og þreytast fyrr. Hraðinn er því vopn sem Keflavík verður að nýta sér.
Það verður væntanlega dagsskipunin að halda pressunni og hraðanum gangandi allan leikinn, þótt slíkt útheimti óhemju orku. En breiddin er ágæt í okkar liði og menn ættu að vera ófeimnir við að keyra sig út. Með hraðanum skapast líka fleiri góð skotfæri sem okkar skyttur munu reyna að nýta sér, en í útileiknum náðu Frakkarnir að gera skyttunum erftitt fyrir með stífri vörn, þannig að lítið var um opin skot og hittnin þar af leiðandi ekki góð.
Derrick er sneggri en stóru mennirnir í Toulon þannig að hann getur komist í skotfæri ef hann fær boltann. Mikilvægt verður að koma honum inn í leikinn og að láta boltann ganga vel, helst inn í teiginn líka. Með því móti opnast vörnin og betri færi skapast. Frábært var að sjá gegn Madeira að við gátum unnið þá án þess að vera í skotstuði, en Toulon er sterkara lið og þurfum við líklega á nokkrum þristum að halda til að eiga raunhæfa möguleika á sigri.
Úrslitin í þessum leik skipta öllu máli um framhaldið. Með sigri getur Keflavík svo gott sem tryggt a.m.k. þriðja sætið í riðlinum, sérstaklega ef hið meiðslum hrjáða lið Madeira tapar gegn Ovarense. En ef leikurinn tapast er óvissan alger.
Aðalatriðið verður baráttan og grimmdin sem hefur verið til fyrirmyndar í þessari keppni. Stuðningur áhorfenda skiptir gríðarlega miklu máli, eins og menn vita, því hvetjandi áhorfendur blása mönnum kapp í kinn og geta gefið viðbótar orku þegar þreytan segir til sín. Ef allt gengur upp á morgun gætum við landað enn einum heimasigrinum, en fyrirfram verður að telja Toulon sterkara lið, enda hreinræktað atvinnumannalið með stóra og sterka stráka innanborðs. En við höfum séð hvað í Keflavíkurliðinu býr og vonandi ná strákarnir að laða það besta fram á morgun. Að minnsta kosti má nú þegar bóka að mikið fjör verður í Sláturhúsinu við Sunnubraut þegar klukkan er fimmtán mínútur gengin í átta . . .