Fréttir

Körfubolti | 17. september 2004

Það verður stuð í Sláturhúsinu á sunnudag með Á móti sól og Stuðningssveitinni

Reiknað er með góðri stemmningu á landsleiknum á sunnudaginn þegar Rúmenar koma í heimsókn. Á móti sól mun hita upp gestina af alkunnri snilld og svo mun stuðningsmannasveitin úr Keflavík, trommararnir ógurlegu, taka við þegar leikurinn hefst og halda stuðinu gangandi . . . ásamt öllum hinum áhorfendunum líka, að sjálfsögðu. Þetta er lykilleikur fyrir íslenska landsliðið og því er nauðsynlegt að allir stuðningsmenn um íslenskan körfubolta mæti í húsið og hvetji drengina hástöfum . . .