Þægilegur 17 stiga sigur gegn ÍR í fyrsta leik Íslandsmeistaranna í Iceland Express deildinni
Oft hafa heimsóknir Keflavíkurpilta í Seljaskóla verið erfiðar á liðnum árum og fyrstu mínútur leiksins í kvöld bentu til þess að ströggl gæti verið í vændum. Keflavíkurliðið pressaði allan völl frá fyrstu mínútu og voru menn ekki alveg á tánum í upphafi leiks. Heimamenn náðu því fljótt 8 stiga forskoti, 14-6. En byrjunarhrollurinn hristist af mönnum og hægt og bítandi náðu okkar menn tökum á leiknum.
A.J. Moye, sem lék í stað Jasons Kaslows sem fór frá félaginu í gær eftir stutt stopp, lék af miklum krafti frá fyrstu til síðustu mínútu og skoraði grimmt. Nokkrar þriggja stiga körfur, m.a. tvær frá Elentínusi og sín karfan hvor frá Arnari og Magga áttu þátt í að koma okkur inn í leikinn. Fyrst og fremst hertist þó varnarleikurinn smátt og smátt og hraðinn óx. Jonni var glimrandi í vörninni, varði skot og hirti fráköst.
Í öðrum leikhluta náði Keflavík 12 stiga forystu og má segja að eftir það hafi aldrei verið spurning um hvoru megin sigurinn lenti, því Keflavík hafði algerlega föst tök á leiknum. Reyndar mynduðust oft göt í vörnina, en það var bætt upp með hröðum sóknarleik. Þar fóru fremstir í flokki Arnar, Jonni og AJ, en hann er afar fljótur fram völlinn, bæði með og án knattar. Síðan kom Sverrir Þór inn með alkunna baráttu og límdi liðið saman í vörninni.
ÍR náði aldrei að róa leikinn gegn svæðispressunni, þrátt fyrir að hafa fengið til sín stóran og mikinn Slóvena, Ales Zivanovic, sem er fyrirtaks körfuboltamaður, stór og leikinn, mikill bolti í kappanum. Á hann eflaust eftir að verða góður þegar hann kemst í betra leikform.
Foyrstan var þægileg allan seinni hálfleikinn, mest svona 8 til 15 stig, en í lokin var öll einbeiting horfin hjá heimamönnum og endaði leikurinn með 17 stiga sigri Íslandsmeistaranna, 98-81. Sverrir átti kost á því að koma Keflavík í 100 stigin, en kaus að brenna af opnu sniðskoti, en gárungarnir á pöllunum sögðu að hann væri að spara (en hefð er fyrir því að sá sem skorar 100. stigið þurfi að blæða). En sem sagt, góð byrjun á mótinu. Bestu menn okkar í kvöld voru AJ (30 stig), Arnar (12) og Jonni (11), en flestir áttu ágæta spretti. Maggi gerði 14, Sverrir 9, Elli 8, Davíð 4, Halldór 4, Gunnar E 4 og Þröstur Jóhannesson gerði sín fyrstu stig fyrir Keflavík í efstu deild. Við óskum honum til hamingju með það, hann er ungur og stórefnilegur strákur sem á eftir að læra mikið í vetur. Zlatko var ekki með, en hann verður orðinn löglegur í næsta leik sem verður á sunnudaginn gegn Skallagrími.