Þegar Bikarinn kom í K-húsið
Þegar Bikarmeistararnir komu til Keflavíkur eftir glæsilegan sigur höfðu nokkrir stuðningmenn safnast saman við K-húsið og kveiktu á blysum. Leikmennirnir gengu glaðbeittir í hús með Bikarinn góða. Seinna um kvöldið gerðu leikmenn karla- og kvennaliðsins sér síðan glaðan dag ásamt fjölmörgum stjórnar- og stuðningsmönnum.