Þjálfarabreytingar hjá Keflavík
Breytingar hafa verið gerðar á þjálfarahópi Keflavíkur.
Fyrr í kvöld var Friðrik Ingi Rúnarsson ráðinn sem aðal þjálfari Keflavíkur en hann mun vinna með Hirti og Gunnari sem verða áfram í þjálfarateymi liðsins. Hjörtur mun áfram þjálfa unglingaflokk liðsins.
Friðrik hefur samiið til tveggja ára og trúir stjórn Keflavíkur að reynsla hans og þekking komi til með að styrkja liðsheildina til muna.