Fréttir

Körfubolti | 27. maí 2025

Nýjir þjálfarar í körfunni

Hörður Axel Vilhjálmsson þjálfar kvennalið Keflavíkur.

Hörður Axel hefur skrifað  undir tveggja ára samning sem þjálfari kvennaliðsins. Hörð þarf vart að kynna fyrir keflvískum stuðningsmönnum en hann lék lengi vel með okkar liði ásamt því að þjálfa kvennaliðið og því má segja að Hörður sé kominn heim. Fyrir stuttu lék hann sinn síðasta leik sem leikmaður en hann tilkynnti opinberlega eftir að Álftanes féll úr leik eftir æsispennandi einvígi gegn Tindastól að hafi leikið sinn síðasta leik. Það verður því frábært að fá hann inn í þjálfarateymið okkar. Framundan eru spennandi tímar og Hörður er kominn á fullt í það að undirbúa komandi vetur. Við bjóðum hann innilega velkominn aftur til okkar og hlökkum til að vinna með honum á ný. Stefnan er að sjálfsögðu tekin á toppinn.
Velkominn heim Hörður 💙
Hörður Axel Vilhjálmsson og Ingvi Þór Hákonarson

Daníel Guðni Guðmundsson þjálfar karlalið Keflavíkur

Daníel Guðni skrifar einnig undir 2 ára samning við Keflavík sem þjálfari karlaliðsins.  Daníel hefur verið viðloðandi þjálfun í meira en 20 ár þó ungur sé að árum og hefur víððtæka reynslu sem mun nýtast vel í starfi hér hjá  Keflavík.  Vinna er í fullum gangi í leikmannamálum og ekki hægt að útiloka að einhverjar fréttir berist í þeim málum innan skamms. Danni er fullur eftirvæntingar að koma aftur inn í íslenska körfuboltann og telur að Keflavík sé fullfært um að keppa meðal efstu liða á komandi tímabili. “Í Keflavík er gerð krafa um að vera á meðal þeirra bestu og ég kem inn í þetta starf vitandi það. Það er mikil tilhlökkun að byrja strax að móta liðið. Meðal forráðamanna liðsins er klárlega metnaður að ná betri árangri en í ár og þangað er stefnan tekin.”
Velkominn til Keflavíkur Daníel 💙
Daníel Guðni Guðmundsson og Ingvi Þór Hákonarson
Við erum full tillhlökkunar fyrir komandi tímabili og stefnan er tekin á toppinn.