Fréttir

Körfubolti | 27. nóvember 2004

Þjálfari Reims hrósar Keflavík

Vefstjóri raskst á viðtal við þjálfara franska atvinnumannaliðsins Reims í dagblaðinu l'union. Þar er hann spurður að því hvort franskt lið úr Pro A deild eigi ekki að hafa sigur gegn liði frá litla Íslandi. Hann svarar því með því að segja að leikstíll Keflvíkinga sé mjög frábrugðin því sem þeir eru vanir, leikmenn séu afar fljótir og tæknilega góðir. Hann segir jafnframt að erfitt sé að eiga við skot af 9 metra færi. Einnig segir hann að þetta Keflavíkurlið hafi öðlast mikilvæga Evrópureynslu og sé vel skipulagt. Þjálfarinn, Francis Charneux, segir að erfitt hafi verið að nýta hæðarmuninn þar sem Kanarnir í Keflavík séu ekki "ekta" stórir menn og því erfitt fyrir stóra og svifaseinni leikmenn hans að eiga við þá. Að lokum kvartar hann undan dómgæslunni og telur hana hafa verið þeim í óhag, þar sem Keflvíkingar komist upp með að leika mjög aggressíva vörn. Ekki vill hann þó kenna dómgæslunni um ósigurinn, segir einfaldlega að betra liðið hafi unnið.