Thomas Sanders til Keflavíkur
Körfuknattleiksdeild K.K.D.K hefur samið við nýjan bandarískan leikmann, Thomas Sanders, 25 ára gamlan skotbakvörð og leikstjórnanda,sem mun taka sæti Valentinos í liði Keflavíkur.Thomas er 191cm á hæð og spilaði seinast með liðinu Illescas á spáni þar sem hann var mikil þriggja stiga skytta, hörku frákastari og góður með boltan þrátt fyrir það að vera 191cm. Sanders mun koma til með að létta mikið á Herði Axeli.
Einnig hefur Gunnar Jóhannsson tekið við formannsstöðu körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. Margeir Elentínusson ákvað að stíga til hliðar sem formaður en mun starfa áfram í stjórn KKDK.