Thomas Soltau heldur heim á leið á morgun
Danski miðherjinn Thomas Soltau sem leikið hefur með Keflavík í vetur heldur heimleiðis á morgun og hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir liðið. Thomas sem hefur spilað misjafnlega í vetur, skoraði 15 stig að meðaltali í deildinni en átt mjög góða leiki í Evrópukeppninni, en þar var hann með 22.7 stig og 8 fráköst. Ástæðan fyrir brotthvarfi hans er að hann þykir ekki henta leikskipulagi liðsins. Við þökkum Thomasi fyrir þann tíma sem hann lék fyrir liðið og óskum honum alls hins besta í framtíðinni.
Thomas í leik gegn Njarðvík í Powerade-bikarkeppninni.