Þriðji leikurinn gegn ÍR er kl. 13 á morgun
Páskarnir setja yfirleitt strik í leikjadagskrá úrslitakeppninnar og slíta hana svolítið í sundur. Því hefur óvenju langur tími liðið frá síðasta leik, en nú er loks komin hreyfing á málin á ný og von á ferskum Breiðhyltingum í Sláturhúsið á morgun. ÍR-ingar náðu að rjúfa tæplega 3ja ára sigurgöngu Kefara á heimavelli í úrslitakeppninni í fyrsta leiknum, en vöktu með því okkar menn til lífsins, eins og allir muna. Eftir burstið í Hellinum er staðan því orðin 1-1 og tveir eða þrír leikir eftir, sá fyrsti á morgun, laugardag, kl. 13, næsti í Breiðholtinu á þriðjudag kl. 19.15 og svo ef að til oddaleiks kemur er hann n.k. fimmtudag í Keflavík kl. 19.15.
Þeir sem sáu leikinn í Seljaskóla urðu vitni af því hversu sterk vörn Keflvíkinga getur verið þegar leikmenn mæta með réttu hugarfari til leiks og liðið leikur á öllum sílíndrum. Það sást vel, ef bornir eru saman tveir fyrstu leikirnir, að það atriði sem mestu máli skiptir í þessari viðureign er hugarfar og baráttugleði okkar manna. Ef þeir koma til leiks eins og um úrslitaleik sé að ræða þá þarf ekki að spyrja að leikslokum, en ef kæruleysi og vanmat gera vart við sig að nýju, þá eru ÍR-ingum allar leiðir færar.
ÍR-hefur á ágætu liði að skipa sem fer langt á liðsheild og baráttugleði, dugnaði í sóknarfráköstum og snöggum bakvörðum. Þeir leika í botni og hafa nú þegar náð meiri árangri en menn höfðu getað vænst, áður en úrslitakeppnin hófst, þeir slógu Njarðvík úr leik og unnu svo Keflavík á heimavelli. Þetta sýnir að ýmislegt býr í liðinu. En eins og áður hefur komið fram, þá er sóknargeta leikmanna takmörkuð, aðeins eru tveir leikmenn í liðinu sem geta skapað hluti sjálfir, Dixon og Eiríkur, aðrir lifa á liðsboltanum og baráttunni, að vörn andstæðinganna sé ekki nógu sterk. Ef vörnin herðist verulega, þá verður erfiðara um vik hjá ÍR-ingum. Því er það svo mikið lykilatriði fyrir okkur Keflvíkinga að mæta reiðubúnir til leiks, því öflugur varnarleikur mun fleyta okkur í úrslitin, jafnvel þó við séum enn langt frá okkar besta í sóknarleiknum, eins og nýting okkar manna í 3ja stiga skotum gefur til kynna.
Maggi var þó farinn að hitna í síðasta leik og Gunni E hefur fengið góðan tíma til að jafna sig á meiðslunum. Við vonumst því eftir því að skytturnar verði klárar í slaginn sem og allir aðrir. Nick nýtur sín best þegar lætin eru mest og hefur hann leikið manna best að undanförnu. Vonandi verður mætingin góð og stemmingin eftir því, jafnvel þótt leikið sé snemma á laugardegi sem er óvenjulegt, en gefur landsmönnum öllum kost á að fylgjast með leiknum á Sýn. Við erum sannfærðir um að skemmtunin verði mikil og vitum að okkar menn hafa ekki í hyggju að tapa tveimur heimaleikjum í röð.
ÁFRAM KEFLAVÍK !!