Fréttir

Körfubolti | 1. febrúar 2005

Þriðji tapleikurinn hjá stelpunum staðreynd

Keflavík tapaði í gærkvöldi fyrir KR í 1 deild kvenna.  Leikurinn var í Keflavík og lokatölur 70-77 og staðan í hálfleik 34-42. Keflavík lék í gær án erlends leikmans, en Latoya Rose var látin fara frá félaginu eftir tapið á móti Haukum í bikarnum. Anna María var heldur ekki með liðinu í gær og munar um minna.  Keflavík er þó en með 4 stiga forskot og leik til góða á Grindavík sem er í 2 sæti. Birna Valgarðs. og Bryndís Guðmunds voru stigahæstar í gær með 27 og 21 stig. Þær skoruðu því 48 stig af 70 stigum liðsins og skorðu því hinar 8 sem léku í gær 22 stig samtals.  Næsti leikur liðsins er í Kennarháskólanum á móti ÍS á fimmtudaginn og næsti heimaleikur er á móti Njarðvík 9 febrúar.

 

Mynd fengin af vf.is.