Þrír Keflvíkingar Norðurlandameistarar með U-18
Keflavíkingarnir Þröstur Leó Jóhannsson, Páll Kristinnson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson urðu Norðurlandameistarar með U-18 ára landsliðinu eftir glæsilegan 13 stiga sigur á Svíum, 82-69, í úrslitaleiknum í Solna í dag. Íslensku strákarnir heilluðu alla í höllinni með leikgleði sinni, baráttu og frábærri liðssamvinnu sem sá til þess að Svíar voru í farþegasætinu allan leikinn. Þetta er annar Norðurlandameistaratitill 1988-árgangsins í röð en þeir unnu einnig fyrir tveimur árum þegar þeir spiluðu sem 16 ára landslið. Sigurður Gunnar Þorsteinsson var valinn í úrvalslið en Sigurður tók meðal annars 22 fráköst, varði 6 skot og skoraði 13 stig í úrslitaleiknum. Þröstur Jóhansson átti einnig mjög góðan leik en hann skoraði 14 stig á þeim 20 mín. sem hann lék.
Strákarnir byrjuðu leikinn ágætlega og komust í 6-2 en Svíar náðu að jafna í 10-10. Frábær kafli í lok fyrsta leikhluta kom íslenska liðinu í 15-10 og eftir fyrsta leikhlutann var staðan 18-12 fyrir Ísland. íslenska liðið hélt frumkvæðinu allan 2. leikhluta og hleypti sænska liðinu aldrei of nálægt sér. Staðan í hálfleik var 36-28 fyrir Ísland.
Svíar hófu seinni hálfleik af krafti og munurinn var kominn niður í 4 stig eftir 4 minútur en líkt og átti eftir að gerast svo oft í leiknum þá tóku íslensku strákarnir alltaf góðan sprett þegar Svíarnir nálguðust of mikið. Ísland var yfir, 52-49, eftir 3. leikhluta eftir að Svíar höfðu unnið síðustu 1 mínútuna og 15 sekúndurnar 9-2. Tvær góðar körfur frá Sigurði Þorsteinsson í upphafi fjórða leikhlutans komu íslensku liðinu aftur í gang og í lokin munaði 13 stigum á liðinu.
Frábær árangur hjá strákunum og verður gaman að fylgjast með þeim með Keflavíkurliðinu á næsta tímabili.
Siggi var valinn í úrvalsliðið