Þrír landsleikir gegn Belgum - einn þeirra í Keflavík, föstud. 25. júní
Íslenska landsliðið í körfuknattleik mætir Belgum í þremur landsleikjum hér á landi í næstu viku. Leikjadagskráin lítur svona út:
Fim. 24.júní kl. 21.00 Íþróttahúsið í Borgarnesi
Fös. 25.júní kl. 21.00 Íþróttahúsið í Keflavík
Lau. 26.júní kl. 14.00 Íþróttahúsið í Stykkishólmi
Leikirnir gegn Belgum eru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir Evrópukeppni landsliða í haust, en auk Belganna koma Pólverjar í heimsókn síðar í sumar. Evrópuleikirnir fara fram í september, útileikur gegn Dönum og heimaleikir gegn Azerbadjan og Rúmeníu.
18 manna hópur hefur æft undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar síðustu vikur. Hópinn skipa eftirtaldir leikmenn:
- Hlynur Bæringsson - Snæfell
- Sigurður Þorvaldsson - Snæfell
- Fannar Ólafsson - Keflavík
- Magnús Gunnarsson - Keflavík
- Jón N. Hafsteinsson - Keflavík
- Arnar Freyr Jónsson - Keflavík
- Halldór Halldórsson - Keflavík
- Friðrik Stefánsson - Njarðvík
- Páll Kristinsson - Njarðvík
- Páll Axel Vilbergsson - Grindavík
- Sævar Haraldsson - Haukar
- Eiríkur Önundarson - ÍR
- Ómar Örn Sævarsson - ÍR
- Lárus Jónsson - Hamar
- Pálmi Sigurgeirsson - Breiðablik
- Morten Þór Szmiedowicz - Grindavík
- Jakob Sigurðsson - Birmingham Southern
- Helgi Magnússon - Catawba College
Tvær æfingar landsliðsins á næstu dögum eru opnar fjölmiðlum. Þær eru:
Fös. 18.júní kl. 18.00 Smárinn, Kópavogi
Þri. 22.júní kl. 18.00 Smárinn, Kópavogi
Þess má geta að kvennalandslið Íslands og tvö yngri landsliðanna að auki standa í stórræðum á komandi vikum. Kvennalandsliðið heldur til Andorra í lok júlí og tekur þar þátt í Promotion Cup, U-16 ára lið kvenna fer til Eistlands um mánaðamótin júlí-ágúst og tekur þátt í Evrópukeppni stúlkna og U-16 ára lið karla fer til Englands í byrjun ágúst til leiks á Evrópumóti drengja.