Fréttir

Körfubolti | 13. október 2003

Þrír léttir sigrar í upphafi leiktíðar

Þá er lokið fyrstu leikhelgi vetrarins. Keppni hófst í þremur keppnum og áttum við lið í þeim öllum. Allir leikirnir enduðu með öruggum sigrum okkar manna og kvenna. Vegna tækilegra örðugleika náðist ekki að setja inn fréttir í tæka tíð, en heimasíðan reynir að fylgjast með af kostgæfni. Skoðum aðeins þessa leiki:

1. deild kvenna: KEF - Grindavík: 104-73

Stúlkurnar yfirspiluðu gestina frá fystu mínútu í ótrúlega hröðum leik. Það þykir yfirleitt ekki vænlegt til árangurs í kvennaboltanum að láta andstæðinginn skora yfir 79 stig (!), en það skiptir jú litlu máli þegar þær sjálfar skora yfir 100 sem er afar fátítt í 1. deild kvenna. Þær stöllur Erla Þorsteins og Birna voru atkvæðamestar en mikla athygli vakti María Ben sem nýtti færin sín vel og var örugg á vítalínunni. Allar stúlkurnar fengu að spreyta sig og allar skoruðu.

 

INTERSPORT-deildin: KEF - Hamar: 100-72

Gamalkunnur taktur hélt velli í fyrsta leiknum í deildinni í vetur. Keflavík pressaði og náði góðri forystu en slakaði síðan á og hleypti gestunum aðeins nær. Þá var gefið í að nýju og svo slakað á. Einhver séð þetta fyrr? En góð byrjun í fyrsta leik og gaman að sjá að Nick Bradford er farinn að finna fjölina sína. Þjálfarinn spilandi, Falur Harðarson, var skotviss, setti 5 þrista úr 9 tilraunum og Gunnar Einarsson hélt uppteknum hætti og var öflugur báðum megin á vellinum. En maður leiksins var Derrick Allen með 24 stig og 16 fráköst. Sá drengur virðist smellpassa inn í leik liðsins. Hamarsmenn voru daufir og virðast ekki komnir almennilega í form. Þeir eiga eftir að eflast.

 

HÓPBÍLA-bikarinn: Ármann - KEF: 79-109

Fyrirtækjabikarinn hefur nú fengið nýtt nafn. Kjörísinn er úr sögunni og nú heitir keppnin Hópbílabikarinn til næstu ára. Í fyrstu umferðinni leikum við gegn 1. deildarliðinu Ármanni/Þrótti og eins og við var að búast var leikurinn léttur. Í lokin var munurinn 30 stig og nokkuð ljóst að við komumst áfram í 8 liða úrslitin. Falur hélt áfram að hitta vel en annars fengu allir að spila mikið og allir náðu að skora í þessari léttu æfingu.