Fréttir

Þröstur Leó semur til þriggja ára
Karfa: Karlar | 22. maí 2013

Þröstur Leó semur til þriggja ára

Þröstur Leó Jóhannsson skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning við Keflavík. Þröst ættu allir Keflvíkingar að þekkja en hann lék með liðinu upp alla yngri flokka ásamt því að spila með meistaraflokki félagsins allt þar til hann ákvað að söðla um fyrir tveimur árum og leika með Tindastól.

Tindastóll féll úr úrvalsdeild í vetur en Þröstur lék ágætlega þau tvö ár sem hann lék með Stólunum en í nýloknu tímabili skilaði hann 10 stigum og 4 fráköstum að meðaltali í leik á þeim rúmlega 20 mínútum sem hann lék að meðaltali.

Keflvíkingar bjóða Þröst að sjálfsögðu hjartanlega velkominn heim og geta vart beðið eftir að sjá hann klæðast þeim svarbláa á ný!

Mynd: Falur Harðarson, formaður KKDK, og Þröstur Leó í kvöld eftir undirskrift.