Fréttir

Körfubolti | 7. janúar 2005

Til hamingju Guðbrandur og Kristín

Guðbrandur Stefánsson íþróttakennari er fertugur í dag. Guðbrandur hefur unnið óeigingjarnt starf  fyrir körfuknattleiksdeild Keflavíkur í gegnum tíðina m.a þjálfað yngri flokka sem hann gerir enn í dag.

Kristín Kristjánsdóttir varð fimmtug í fyrradag 5 janúar. Kristín hefur eins og Guðbrandur starfað lengi að körfunni í Keflavík m.a fyrir unglingaráð þar sem hún er formaður í dag.

Stjórn Keflavíkur er þeim ákaflega þakklát fyrir þeirra starf í gegnum árin og vonar að við fáum að njóta starfskrafta þeirra sem allra lengst. Til hamingju með afmælin, þið lengi lifi.  Kveðja Stjórnin.