Til hamingju Njarðvíkurstúlkur
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur vill nota tækifærið og óska Njarðvíkurstúlkum til hamingju með sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í kvennaflokki.
Þær eru svo sannarlega vel að þessu komnar og frábært að sjá hve öflug uppbygging hefur orðið á skömmum tíma í kvennaboltanum hjá þeim grænklæddu. Það liggur fyrir að hér eru komnir verðugir keppinautar til framtíðar í kvennaboltanum og þetta undirstrikar þá staðreynd að Suðurnesin eru Mekka Körfuboltans á Íslandi.
Sjáumst í keppnisskapi eftir sumarið!