Tilþrifamikill sóknarleikur í fyrirrúmi hjá Keflavík og staðan 2-0 eftir öruggan sigur í Sláturhúsinu, 114-103
Það var ljóst þegar í upphafi að Keflvíkingar ætluðu að vinna leikinn á sókninni. Grindavík hefur ekki fundið ráð til að stöðva Keflavíkurhraðlestina og því var allt púður sett í hraðan sóknarleik. Eddi fór á kostum, eina ferðina enn í úrslitakeppninni, og Damon átti stórleik, eins og svo oft áður. Aðrir gerðu sitt og Magnús Gunnarsson er að sýna mikinn stöðugleika í úrslitakeppninni. Í þessum sóknarham gátu Keflvíkingar leyft sér að taka hlutunum rólega í vörninni án þess að sigurinn væri nokkurn tímann í hættu.
Framan af fyrri hálfleik var þó jafnræði með liðunum og það geta Grindjánar helst þakkað Darryl Lewis sem var hreint magnaður. Hann setti 25 stig í fyrri hálfleiknum og hélt sínum mönnum í leiknum þar til einstaklingsframtakið dugði ekki lengur. Þá fór Keflavík að síga framúr og í hálfleik hafði Keflavík 12 stiga forystu, 60-48.
Í seinni hálfleik fór fram enn ein slátrunin í Sláturhúsinu. Damon og Ed voru óstöðvandi og við bættist frábær sóknarleikur Magnúsar og Gunnars Einarssonar. Og loks herti Keflavík vörnina og þá var ekki að sökum að spyrja. Þriðji leikhlutinn var alger eign Keflvíkinga sem gátu leyft sér að skemmta áhorfendum með stórkostlegum tilþrifum. Ed og Damon tróðu til skiptis þannig að íþróttahúsið lék á reiðiskjálfi af fagnaðarlátum, enda pakkað í húsinu.
Ed átti afturábak viðstöðulausa troðslu eftir sendingu frá Damon sem var hreint mögnuð, en alls tróð hann líklega 6 sinnum í leiknum og höfðu menn á orði eftir leikinn að þetta væri líklega einsdæmi í Keflavík, fleiri troð en þristar! Damon átti þó flottustu troðsluna þegar Pedrag Pramenko ætlaði að dekka hann úti á miðjum velli. Damon gaf félögum sínum merki um að fara frá, keyrði síðan fram hjá Pramenko í áttina að körfunni. Þar kom Guðmundur Bragason tilbúinn að hjálpa, en Damon gerði sér lítið fyrir og hamraði knettinum yfir Gumma með miklum tilþrifum. Með þessari körfu var kominn 20 stiga forysta og leikurinn í sjálfu sér búinn.
Staðan að loknum þriðja leikhluta var 93-74 og aðeins formsatriði að klára leikinn. Enda var síðasti leikhlutinn frekar rólegur og heimamenn sigldu heim öruggum sigri, 114-103. Allir skiluðu sínu hlutverki þó óvenju rólegt hafi verið yfir Gaua Skúla og Fal Harðar í þetta skiptið. En það kom ekki að sök, staðan er nú 2-0 og staða okkar manna orðin ansi vænleg. Næsti leikur er í Grindavík á fimmtudaginn kl. 19.15.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!