Fréttir

Körfubolti | 29. október 2003

Tímavörðurinn pistill 10

Njarðvík-Keflavík

 

Jæja þá er fyrsti stórleikur ársins búinn, og við töpuðum verðskuldað.

 

Njarðvíkingar voru mun betra liðið, og við verðum heldur betur að taka okkur saman í andlitinu ef við eigum að ná að sigra sterku liðin.  Tímavörðurinn vill óska Njarðvíkingum til hamingju með leikinn, og takk fyrir góða skemmtun.  Vonandi mætið þið af sama krafti í næsta leik okkar á milli.  Þetta var gott spark í óæðri endan á okkur og vonandi verður það til þess að menn taki sig á hér í “hjáleigunni”.

 

Þar sem Tímavörðurinn sat voru nokkrir stuðningsmenn að pirra sig á dómurunum, en þeir stóðu sig með stakri prýði, og dæmdu eins á bæði lið, leyfðu fullmikla hörku hjá báðum liðum í fyrrihálfleik, en í heildina var leikurinn mjög vel dæmdur.  Eins og áður hefur verið minnst á í þessum pistlum þá töpum við þeim leikjum sem við leggjum okkur ekki 100% í. 

 

Sumir leikmenn Keflavíkurliðsins verða að fara að gera það upp við sig hvort þeir ætla að vera körfuknattleiksmenn í landsliðsklassa eða dútla í þessu af hálfum hug.  Ef menn eru ekki tilbúnir að leggja sig alla fram, þá eru þeir betur geymdir hjá Reyni Sandgerði eða öðrum neðrideildarliðum.

 

Það eru einungis tveir leikmenn sem lögðu sig alla fram í leiknum að mati Tímavarðarinns og það eru Falur og Davíð.

 

Frammistaða flestra annarra var móðgun við stuðningsmenn liðsins.  Í leiknum heyrðist vel í stuðningsmönnum beggja liða, en leikmenn Keflavíkur geta ekki ætlast til þess að stuðningsmenn nenni að styðja liðið, ef liðið nennir ekki að spila. 

 

Það er ósk Tímavarðarinns að menn taki sig nú á, og fari að spila eins og getan leyfir.  Í liðinu eru leikmenn sem hafa sýnt okkur það í gegnum árin að þeir hafa hæfileika til að gera góða hluti inná vellinum, við nennum bara ekki að bíða eftir úrslitakeppninni.

 

Talsverð umræða hefur verið á spjallinu núna eftir leikinn og gamla fræga skítkastið hefur verið endurvakið.  Tímavörðurinn vill ítreka það við stuðningsmenn Keflavíkurliðsins að svara ekki þegar einhver miðurgáfuleg athugasemd kemur frá stuðningsmönnum annarra liða. 

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.