Fréttir

Körfubolti | 7. nóvember 2003

Tímavörðurinn pistill 11

Frábær sigur.

 

Það er langt síðan Tímavörðurinn hefur upplifað eins skemmtilegan leik eins og fyrsta leik okkar í Evrópukeppninni.  Það var ekki sigurviss Tímavörður sem gekk inn í íþróttahús okkar Keflvíkinga eftir að hafa heyrt að þvílíkur alheims-kokkteill væri að spila í þessu portugalska liði.  En þó viss um að við gætum strítt þeim ef menn væru vel stemmdir, en stóra spurningin, myndum við halda það út.

 

Mikið var það ljúft að þessum vangaveltum var troðið öfugum ofaní Tímavörðinn í baráttunni við portúgalana.  Það var augljóst að baráttan kom portúgölum í opna skjöldu.  Þeir hafa augljóslega fengið smá sjokk að við spilum útum allan völl, eins og óþekkir krakkar á skólalóð, neitum því að stilla okkur uppí röð svo andstæðingarnir geti í rólegheitum skipulagt sinn sóknar og varnarleik.  Keflavíkurliðið spilaði sem heild og geta allir landsmenn verið stoltir af íslenskum körfubolta þessa dagana.  Enda er frábært að fylgjast með hvatningu og árnaðaróskum frá stuðningsmönnum hinna ýmsu liða á landinu.  Vonandi fá fleiri lið hér á landi tækifæri að taka þátt í svona keppni í framtíðinni, og verða þá keflvíkingar fyrstir til að borga til baka þann stuðning sem við erum að fá þessa dagana.  Hlýhugur stuðningsmanna annarra liða mun ekki gleymast.

 

RÚV ber að þakka þeirra umfjöllun um leikinn, og vonandi verður framhald þar á.  Enda tveir heimaleikir eftir.  Tímavörðurinn vill hvetja alla körfuboltaunnendur til að senda þakkar póst á RÚV  Samúel Örn Erlingsson Deildarstjóri íþróttardeildar samueloe@ruv.is og sýna að við kunnum vel að meta það sem vel er gert.

 

Ef við snúum okkur aftur að leiknum, þá vill Tímavörðurinn sérstaklega þakka Gunna Einars fyrir sitt framtak á ögurstundu í fjórða leikhluta, þegar portarnir höfðu náð niður 17 stiga forystu niður í 6 stig, þá var það fyrst og fremst hann sem reif menn upp, og dró vagninn.  Þegar þarna var komið voru menn gjörsamlega búnir og augljóst var að menn höfðu gefið sig 150% í leikinn, og er óskiljanlegt hvar hann náði í þann kraft sem hann notaði síðustu mínúturnar.

 

Kanarnir okkar stóðu fyrir sínu, og Falur sýndi það að hann er einn besti leikstjórnandi á landinu, og þegar þreytan var farinn að segja til sín hjá “öldungnum” var gaman að sjá að Hjörtur var tilbúinn til að klára dæmið, spila skynsamlega og láta tímann líða.  Leikaðferðin sem Gaui og Falur lögðu af stað með gekk fullkomnlega upp.  Sprengja gestina með hröðum leik og sást að Wilson, þeirra helsta stjarna var farinn að biðja um sprengitöflur í lokin, búinn á sál og líkama.  Vítanýting hans var ótrúleg, og efar Tímavörðurinn að Wilson myndi hitta körfuhringinn, þó hann sæti á honum.

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.