Fréttir

Körfubolti | 12. desember 2003

Tímavörðurinn pistill 12

Tímavörðurinn er búinn að vera svo til orðlaus yfir góðum árangri á heimavelli á móti erlendum liðum.

 

Fyrst voru það Portúgalarnir sem voru lagðir af velli, en það var augljóst að þeir vissu ekkert hverju þeir ættu von á hér á klakanum rétt sunnan við Jan Mayen.  Þeir hafa örugglega vanmetið okkur að einhverju leiti og ofmetið sjálfa sig.  Eftir tvo sigurleiki hefði mátt halda að Frakkarnir kæmu ákveðnir til leiks og myndu ekki láta dvergalið fara illa með sig.  Frakkarnir voru flestir höfðinu hærri en við, og okkar minnstu menn hefðu í mesta lagi getað skallað þá í hné-in. 

Það sem er merkilegt við leikinn er að í þrjá leikhluta spiluðum við illa, en náðum samt að vinna.

 

Tímavörðurinn er sannfærður hver ástæðan er fyrir sigrinum.  Það voru ekki leikmenn sem héldu merki Keflvíkinga hæst á lofti í þessum leik, heldur hin frábæra STUÐNINGSMANNASVEIT (sem hér eftir verður alltaf skrifuð með stórum stöfum).  Lengstum var liðið að draga lappirnar, en STUÐNINGSMANNASVEITIN hélt haus allan tímann, og þeir voru ákveðnir í því að vekja liðið sama hvað það kostaði (þó svo það kostaði tónleika með MUSE).  STUÐNINGSMANNASVEITIN hefur eflst með hverjum leik og er í dag öflugasti leikmaður liðsins.  KKÍ skráir einungsi tölfræði úr leikjum, en velja hefði átt mikilvægasta leikmann síðasta leiks, er það án alls vafa STUÐNINGSMANNASVEITIN.  Þið sem skipið þennan hóp getið gengið stoltir um bæinn og leikmenn liðsins þakka ykkur örugglega fyrir ykkar framlag til leiksins.  Vonandi á starf STUÐNINGSMANNASVEITARINNAR einungis eftir að eflast og verður þá okkar heimavöllur sá staður sem Íslandsmeistaratitlinum verður hampað í vor.

 

Áfram STUÐNINGSMANNASVEITIN og Keflavík.

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.