Fréttir

Körfubolti | 15. janúar 2004

Tímavörðurinn Pistill 13

Tímavörðurinn  vill byrja á að þakka Risanum og Stefáni fyrir að reka á eftir pistli, gott að vita að það séu ekki allir búnir að gleyma Tímaverðinum.

 

Það er merkilegt hvað liðið okkar getur spilað vel á góðum degi og staðið í atvinnumannaliðum sem koma frá sterkum deildum í Evrópu.  Þess vegna er það ennþá merkilegra hvað liðið getur spilað hrikalega illa á slæmum degi.  Tapleikurinn á móti Hamri er þar efst í huga.

 

Getur verið að þegar mótherjinn er sterkur og við verðum að vera með hugann 100% við leikinn, þá náum við því besta úr okkar leikmönnum.  Svo þegar spilað er á móti liðum í neðri parti deildarinnar, sem á pappírum ættu að vera auðveld bráð, gengur ekkert upp.

 

Það sést líka vel á mætingu á þessa leiki, að fólk hefur mestan áhuga á stóru leikjunum, og fylgjast með því þegar liðið leggur sig 100% fram.  Það er eðlilegt að fólk nenni ekki að mæta, þegar leikmenn mæta einungis líkamlega í leikina en ekki andlega.

 

Hvað er til ráða?  Það virðist ekki vera nóg að tvö stig séu í boði sem færa okkur nær toppi og betri stöðu í deildinni.  Verðum við að búa til einhverja aðra “gulrót” fyrir leikmenn svo þeir mæti af fullum hug í leikina? 

 

Hugmyndir:

1.      Hvernig væri að velja mann leiksins sem fengi svo út að borða fyrir tvo á SOHO, líkt og er gert í fótboltanum.

2.      Ef liðið heldur 100 stiga meðal stigaskori í leik, nokkra leiki í röð fer það saman í Snóker/keilu.

3.      Koma á meiri samskiptum á milli leikmanna og áhorfenda, þannig að báðir aðilar peppi hvorn annan upp.  (samanber Alli á árum áður)

4.      Á móti lélegum liðum, lágmark ein troðsla í fjórðung.  Þriggja stiga frá miðju. Ofl.  (má reyna þegar komin er 15 stiga forysta)

5.      Sá leikmaður sem er áberandi lélegastur í leiknum verður að bera töskuna fyrir þann stigahæsta.  (þjálfari velur).

 

Þetta eru einungis hugmyndir og þær þyrfti að útfæra, þurfa ekki endilega að vera allar í gangi í hverjum leik, bara ákv. fyrirfram á hvað á að stefna.

 

Það er gríðarlega mikilvægt að leikmenn hafi gaman af því sem þeir eru að gera, og er það þá fljótt að smita útfrá sér.   Meiri gleði, og meira fjör = fleiri áhorfendur.

 

Gleðilegt ár.

 

Tímavörðurinn.

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.