Fréttir

Körfubolti | 10. febrúar 2004

Tímavörðurinn pistill 14

Tímavörðurinn er í sjokki!!!!!!!!!!!!!!

 

Í upphafi tímabils auglýsti Tímavörðurinn eftir hinum gamla góða ríg, og það var m.a. tekið upp á heimasíðu Víkurfrétta og spjallsvæðum körfuboltanns víða.  Eru einhverjir sem mis-skildu þennan ríg?

 

Fyrir helgi byrjaði undirritaður á pistli sem er í ljósi atburða helgarinnar algjörlega ónothæfur, en hér er smá brot af þeim pistli:

 

Það er eitt sem tímaverðinum finnst sérstakt er að þessi lið eru yfirleitt kölluð “Erkifjendurnir”, “hinir fornu fjendur”.  En slíkt gefur til kynna að þessi lið, og stuðningsmenn þeirra, hati hvor aðra eins og pestina.  En það er mjög langt því frá.

Eins og við öll þekkjum hér í bænum þá eru þetta lang skemmtilegustu leikirnir og umræðan fyrir og eftir svona leiki leggur bæinn á annan endann. 

 

Það er búið að taka Tímavörðin nokkra daga að ná sér niður eftir helgina, fyrst var það óstjórnanleg gleði, og svo hrikalegt sjokk.

 

Ef við afgreiðum leikina fyrst, þá er það ljúft að sjá hvað við eigum góða unga leikmenn sem eru að koma sterkir inn.  En fyrst og fremst ber að lofa frammistöðu stuðningssveitarinnar.  Vorum við á heimavelli?  Það heyrðist ekki neitt í öðru liði allavega.

 

Sigurhátíðina verður svo að taka fyrir.  Fyrst og fremst vill Tímavörðurinn óska Fannari góðs bata, og er þess sannfærður að hugur allra körfuboltaunnenda og stuðningsmanna allra liða er hjá honum.  Mjög mikilvægt er að árétta það að ógæfumaðurinn sem réðst að Fannari með hræðilegum afleiðingum er alls ekki stuðningsmaður Njarðvíkur.  Það er eðli hvers sanns stuðningsmanns að styðja sitt lið og vilja veg þess sem mestan.   Það er hægt að gera með góðum stuðning á leikjum samanber stuðningsmannasveitina okkar, með því að styðja leikmenn í orði og gjörðum á öllum sviðum.  Maður sem ræðst á leikmann annars liðs, er sér til skammar og alls EKKI stuðningsmaður.  Sá aðili er að gera sínu liði mun meira ógagn en gagn.  Því vill Tímavörðurinn ítreka það að Stuðningsmenn Njarðvíkur höfðu ekkert með þennan atburð að gera.  Þetta er jafnleiðinlegur atburður fyrir Njarðvíkinga eins og okkur Keflvíkinga.

 

Upprunanlegi Pistillinn átti að fjalla um það að eyða út orðunum “erkifjendur”, “hinir fornu fjendur”.  Í stað þess vill Tímavörðurinn að við notum orðið “Bræður/Systur”  Þetta eru Bræður okkar í Njarðvík sem við vorum að berjast við.  Á milli bræðra ríkir alltaf skemmtilegur rígur, mont og létt hæðni er alltaf fylgifiskur sigurs í spili eða hverju sem er.  Þannig er samband okkar við Njarðvík.  Við elskum að spila við þá sem standa okkur næst, það getur leitt til þess að við þurfum að þola stríðni, en við vitum alltaf að sú stríðni er í mesta bróðerni.  Það sem er skemmtilegast við þessa leiki er að við þurfum að hitta liðsmenn og stuðningsmenn hins liðsins dagana eftir erfiða leiki.  Annað hvort að stríða eða þola stríðni, en við getum ekki flúið.  Þannig er samband bræðra og systkina,  þó svo þú viljir kannski ekki hitta fólkið rétt á eftir slæmu tapi þá er það ekki umflúið, og eftir ljúfan sigur getur maður ekki beðið eftir að fá að ítreka sitt eigið ágæti.

 

Því mun Tímavörðurinn héðan í frá nota orðið Bræður og Systur um nágranna okkar og vill hvetja fólk til að leggja orðunum “hinir fornu fjendur”, og “erkifjendurnir”.  Vonandi munu svo blöðin einnig taka þetta upp. 

 

Umfjöllun dagblaðsins var svo ómerkileg að Tímavörðurinn mun ekki eyða plássi í að fjalla um hana, en sagði hins vegar blaðinu upp.

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.