Fréttir

Körfubolti | 10. mars 2004

Tímavörðurinn Pistill 15

Úrslitin:

 

Jæja þá er forleikurinn að baki og við skellum okkur í hápunktinn.  Eftir langa bið er komið að alvörunni og við mætum hinu skemmtilega liði Tindastóls sem er eflaust með einn skemmtilegasta heimavöllinn í deildinni.

 

Tímaverðinum finnst frábært hvernig Njarðvíkingar byggja upp stemmingu fyrir úrslitin.  Bræður okkar í Njarðvík eiga hrós skilið fyrir FRÁBÆRAR auglýsingar.  Það að stæla þekktar auglýsingar og heimfæra uppá liðið er alveg ný leið og vonandi taka fleiri lið upp þessa frumlegu kynningu.  Ekki skemmdi fyrir að Njarðvíkingar tóku eina af uppáhalds auglýsingum Tímavarðarinns til að stæla, Thule auglýsinguna.  Vonandi verður næsta auglýsingin stæling á hinni frábæru auglýsingu Myndbanda Mánaðarinns með Flash-dans ívafi.  Tímavörðurinn skorar á Njarðvíkinga að nota Frikka Stefáns í aðalhlutverkið.  Enn og aftur takk fyrir Njarðvíkingar, frábært framtak.

 

Nýjustu fréttir herma að Gunni hafi slasað sig á putta.  Það er nauðsynlegt að fá hann sem fyrst heilan aftur, svo nú verður að setja hann í tölvubann, ekki reyna neitt á puttann, ekki einusinni pikka.

 

Mikil umræða hefur verið um kana.  Á að spila með 1,2,3 eða fleiri kana?  Hverjir voru fyrstir að spila með auka kana.  Eru kanar með ísl. Ríkisborgararrétt kanalegir íslendingar eða íslenskir kanar.  Tímavörðurinn er persónulega á móti því að við dreifum ríkisborgararétt sem bónus fyrir menn sem nennt hafa að spila hér á klakanum í nokkur ár.   En það þýðir lítið að væla yfir því.  Á spjallinu undanfarið hafa nokkrir Keflvíkingar farið mikinn, og kvartað yfir að Njarðvík og Grindavík séu að fá sér nýja kana.   Auðvitað munum við líka fá okkur kana ef við teljum það hjálpa okkur.  Sú hugsun sem er að baki stjórnunar á körfuboltaliði er eins, sama hvort fólk er að stjórna Keflavík, Njarðvík eða Grindavík.  Allar leiðir sem reglurnar leyfa okkur verða notaðar.  Og þar er vandamálið!!  Reglurnar bjóða uppá þennan trúðsleik.  Getum við samið við leikmenn að þeir spili annan hvern leik frítt?  Verið með samtals sex kana, en þar sem einungis þrír eru á launum í hverjum leik, teflt fram liði með sex könum.  Nú er það KKÍ og stjórna liðana að breyta þessum skrípaleik fyrir næsta tímabil.

 

Stuðningsveitin sendi Tímaverðinum tölvupóst, en það var fyrsta bréfið frá því 6. nóvember, svo sjá má að pósturinn er ekkert að drekkja Tímaverðinum. 

Hér er svo pósturinn:

 

Já komdu sæll kæri Tímavörður. Okkur strákunum hérna í Stuðningsmannasveitinni langar bara til þess að þakka þér kærlega fyrir þá góðu umfjöllun og frábæra hrós sem þú hefur verið að ausa yfir okkur í pistlum þínum, it means a lot 2 us!  Það er nebbla svo gaman að heyra þegar menn eru sáttir við það sem við erum að gera og kunna að meta okkur, og okkur heyrist þú bara vera okkar fan#1 ;)
Haltu áfram þessum flottu skrifum þínum, alltaf gaman að þessum pistlum þínum, mikið af liði útí bæ sem les þá,  og það heldur ekkert leiðinlegt að heyra eitthvað hresst um okkur ;)        Áfram Keflavík!

Joey Drummer 

 

Það er alveg staðreynd að öllum þykir gott að fá hrós, og eiga meðlimir stuðningsveitarinnar allt hrós skilið og verður hlutverk þeirra í úrslitakeppni enn mikilvægara en hingað til, og munu þeir örugglega standa undir þeirri áskorun að skapa frábæra stemmingu á leikjum.  Ef við náum að vinna Íslandsmeistaratitilinn mun Tímavörðurinn persónulega taka í hendina á þeim öllum á þeirri sigurstundu.

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.