Fréttir

Körfubolti | 5. apríl 2004

Tímavörðurinn pistill 16

Mikið er búið að vera gaman síðustu daga.  Þessi úrslitakeppni er búinn að bjóða uppá allt sem skemmtilegur körfubolti getur boðið uppá.  Hvað eftir annað er hjartað búið að fara yfir 200 slög hjá fjölmörgum körfuboltaunnendum.  Og það er margt sem hefur komið auknum hjartslætti af stað, dómarar, einstakir leikmenn, frábær tilbrigði ofl.  

 

Þá leiki sem við höfum unnið, hefur liðið verði að spila saman.  Það sást glöggt í síðustu tveim Grindavíkurleikjunum að þeir voru ekki að spila saman, hver leikmaður að þvælast fyrir öðrum og sýndi sig að kanablandan þar var röng.  Nýir kanar spiluðu ekki með hinum í liðinu, heldur skemmtu þeir oft fyrir. 

 

En Tímavörðurinn vill nota tækifærið og Þakka Guðmundi Braga fyrir sitt framlag til körfuboltanns.  Guðmundur Braga hefur gert mikið fyrir körfuboltann og er sá íslendingur sem alltaf hefur staðið sig vel með landsliðinu.  Takk Gummi.

 

Snæfell, Snæfell, Snæfell, vvvááá.  Þvílíkir báráttuhundar.  Berjast allan tímann, og í kvöld þegar leikurinn var tapaður, skora þeir 9 síðustu stiginn með frábærri baráttu.  Ætli “Torfi bróðir” hafi kreist skeifuna hressilega í lokin.  Snæfell hefur unnið leiki þegar þeir hafa spilað saman eins og lið, en þeir gerðu það ekki í kvöld af óskiljanlegum ástæðum.   Það er enginn forysta örugg á móti þessu liði.

 

Allt liðið á hrós skilið fyrir leikinn í kvöld og þjálfararnir okkar eru að sýna að fáir kunna þennan leik eins vel og þeir, enda með samanlagt 50 ára reynslu úr boltanum.  Gróflega reiknað.

 

Og þá er það Stuðningsveitin !!!! Maður bara spyr, vorum við á heimavelli í kvöld?  Þvílíkur var hávaðinn.  Ef við löndum bikarnum næstkomandi laugardag, mun Tímavörðurinn standa við það loforð sitt að taka í höndina á þeim eftir leik.  Þeir eiga allar þakkir skyldar.

 

Bestu kveðjur og með von um að við tökum þetta næsta laugardag.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.