Fréttir

Körfubolti | 2. október 2003

Tímavörðurinn, pistill 7, Reykjanesmótið

Eftir að hafa séð á spjallinu eftirspurn eftir þessum pistlum, er um að gera að koma með einn.   Tímavörðurinn var í vafa hvort einhver hefði gaman að þessu “bulli”, svo undanfarna daga fengu önnur verkefni forgang. 

 

Fyrr í kvöld urðum við Reykjanesmeistarar í sterkasta móti ársins eins og áður hefur verið fjallað um.  Vonandi er þetta forsmekkur af því sem koma skal. 

 

Hvað er að gerast með Grindavík, við vinnum njarðvík (skrifa njarðvík með litlum staf til að æsa þá upp, þið munið rígurinn), og svo vinnur njarðvík Grindavík með 24 stigum.  Ætla Grindvíkingar að verða okkur suðurnesjamönnum til skammar í vetur.  Það er krafa Tímavarðarinns að Keflavík, njarðvík Haukar og Grindavík raði sér í topp 4 á Íslandsmótinu sem framundan er.  Á Grindavík kannski frekar erindi að spila í einhverju annarsflokksmóti eins og Reykjavíkurmótinu, frekar enn að spila á meðal þeirra bestu í Reykjanesmótinu?  Reyndar er það nokkuð víst að ef að illa lítur út með framhaldið að Grindvíkingar kaupa einhverjar stjörnur og munda þær á bát í pleisinu til að bjarga andlitinu útá við.  Sú formúla þeirra er farin að hiksta, samanber í fótboltanum þar sem Lee Sharp ævintýrið skilaði þeim litlum frama (3 mín. frá falli).  Það mun engan veginn hjálpa Grindvíkingum í vetur í karlaflokki að hafa ráðið Pétur Guðmundsson, besta körfuboltamann sem Ísland hefur enn alið sem þjálfara kvennaliðsins.  Frákasta hausverkur karlaliðsins verður enn til staðar, og lítil von á því að Pétur komi til bjargar uppí stúku. 

 

Vonandi var hægt að æsa Grindvíkinga og njarðvíkinga aðeins upp með þessum pistli, svo að góður og hollur rígur komi til baka.

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.