Fréttir

Körfubolti | 8. október 2003

Tímavörðurinn pistill 8

Jæja þá rúllar deildin loksins, og fyrsti heimaleikurinn okkar á morgun.

 

Okkur er spáð sigri í deildinni og á það ekki að koma neinum á óvart.  Markmið okkar er vitaskuld að vinna alla titla sem í boði verða, og það þarf enga utanaðkomandi snillinga til að sjá að það er það sem við stefnum að og er raunhæft markmið. 

 

Reyndar telur Tímavörðurinn að yfirburðir kvennaliðsins verða meiri en karlaliðsins.  Það að hafa fengið Erlu Reynis aftur mun fljóta okkur mjög langt.  Það er spá Tímavarðarinns að þetta verði Erlu tímabilið,  með eina inní teig og aðra fyrir utan mun ekkert stöðva okkur.

 

Hvað getum við gert til að rífa upp stemmingu á leikjum?  Hvernig getum við gert heimavöllinn okkar þann erfiðasta á landinu?  Það er ekki nóg að skammast og kvarta yfir því að fólk taki ekki undir á leikjum.  Það verður að finna lausn.  Tímavörðurinn er ekki viss um hvað sé lausnin, en vill koma með hugmyndir.

 

  1. Finna verður ný stuðningslög, einföld og sem tengjast jafnvel einstaka leikmönnum.  Ekki ósvipað og gert er í enska boltanum.  
  2. Lukkudýrið verður að vera virkt, og í samstarfi við Stuðningssveitina
  3. Leikskráin verður að innihalda nýjar og ferskar upplýsingar. Td. viðtöl við leikmenn og stuðningsmenn.  Ekki þura tölfræði.  Og texta við ný lög
  4. Stuðningsmenn hittast fyrir leiki og jafnvel eftir leiki, gera eitthvert öldurhús að óopinberu samkomustað Stuðningsmanna.
  5. Efla umræðu um körfuboltann hvar sem er,  vonandi smitar það útfrá sér.

 

Nú vill Tímavörðurinn hvetja fólk til að senda inn hugmyndir af stuðningslögum á netfangið hér að neðan, og hugmyndir hvernig við getum bætt stemminguna, og mun þá Tímavörðurinn koma því á framfæri.

 

Bendum ekki á það sem er að, bendum á það hvað við getum gert betur.

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.