Fréttir

Körfubolti | 21. október 2003

Tímavörðurinn Pistill 9

Jæja þá er fyrsti tapleikurinn staðreynd.  Við höfum ítrekað verið í vandræðum með ÍR.  Reyndar er það ekkert svo merkilegt því ÍR er orðið sterkt lið sem getur blandað sér í baráttu þeirra bestu.  Eiríkur Önundarson er gríðarlega sterkur leikmaður og án efa einn af bestu bökkurum sem komið hafa fram. 

Það er von Tímavarðarinns að ÍR liðið eigi eftir að styrkjast enn frekar á komandi árum, og verður það körfuboltanum til framdráttar.  Í dag er það ekki bara KR sem liðin hér suðurfrá verða að óttast heldur einnig sterkt lið ÍR-inga. 

 

Það er körfuboltanum til framdráttar að fleiri sterk lið af Reykjavíkursvæðinu komi fram.  Tímavörðurinn hefur trú á því að innan skamms verði Fjölnir með sterkt úrvalsdeildarlið, þar sem gríðarlega gott yngriflokkastarf er í Grafarvoginum. 

Við þekkjum það hér fyrir sunnan að góðir nágrannaslagir eru það sem við lifum fyrir, og það verður auðveldara fyrir körfuboltann að fá umfjöllun í fjölmiðlum ef nágrannaslagir í Reykjavík vekja athygli. 

 

Það er eitt sem Tímaverðinum finnst alltaf merkilegt, það er þegar leikmenn röfla það mikið í dómaranum að þeir fá tæknivillu.  Það skiptir engu máli hvursu vitlausan dóm dómarinn kveður upp, það hefur aldrei gerst, að dómari breyti dómnum þegar leikmaður er búinn að benda honum á hvursu foráttu heimskur dómurinn hafi verið.   Það getur vel verið að dómarar leiksins á sunnudaginn hafi verið á sama gæðaplani og lagasmíðar Árna Johnsen, það réttlætir aldrei að við söfnum tæknivillum.

 

Menn hafa verið að segja á spjallinu að við séum að kenna dómurunum um.  Við getum einungis kennt okkur sjálfum um.  Ef við náum að spila eins og við gerum best, er alveg sama hvaða liði við mætum og hvaða dómarar dæma leikinn, við eigum að vinna.  Nú verðum við að taka okkur saman í andlitinu fyrir næsta leik, og gera ráð fyrir að við fáum glataða dómara, sem munu dæma okkur í óhag, og þá bara að taka á því eins og menn, og spila því betri körfubolta.

 

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.