Tindastoll 89 - Keflavík 86 ... leiknum lokið - umfjöllun
Enn eitt klúðrið í útileik leit dagsins ljós nú rétt áðan á Sauðárkróki. Þegar 33 sekúndur lifðu leiks var staðan 87-86 og Keflavík átti boltann. En sóknarleikurinn var stirður og ekki tókst að ná skoti á körfuna á þeim 24 sekúndum sem við höfðum til umráða. Í kjölfarið fékk Cook tvö vítaskot sem hann nýtti, staðan 89-86. Fimm sekúndur eftir og Keflavík hafði boltann. Fannar tók síðasta skotið sem geigaði.
Nick Boyd lék ekki með en samt tókst heimamönnum að sigra, enda virðist Keflavíkurliðinu alveg fyrirmunað að leika góðan körfubolta á útivelli. Clifton Cook fór á kostum í liði heimamanna og skoraði 28 stig, eins voru Sanders og Svavar Birgisson góðir. Sanders uppskar reyndar óíþróttamannslega villu þegar hann sló Sverri Þór og var heppinn að hljóta ekki strangari dóm.
Keflavík náði ágætum spretti í fyrri hálfleik eftir innkomu Magnúsar og náði mest 9 stiga forskoti. Það forskot dvínaði hins vegar fljótt og í hálfleik var munurinn eitt stig, 46-47. Í seinni hálfleik voru heimamenn alltaf fetinu framar og unnu verðskuldaðan sigur.
Magnús var bestur okkar manna setti niður 5 þrista og skoraði alls 22 stig. Derrick gerði 24 (og 8 fráköst) en þurfti margar tilraunir og missti boltann allt of oft, líkt og félagi hans, Nick (10 stig), sem átti slakan dag, enda í villuvandræðum mest allan tíman og lék bara um hálfan leikinn. Fannar (11 stig, 8 frák) og Jonni (8 st, 7 frák) léku ágætlega og héldu okkur gangandi í síðasta leikhlutanum. Gunnar náði sér ekki á strik og var aumur bæði á hné og hönd. Sverrir og Hjörtur hittu ekki á góðan dag, þótt Sverrir hafa gert ýmislegt gott, t.d. átti hann 7 stoðsendingar og 6 fráköst.
Verst var að vörnin náði ekki að stoppa heimamenn og síðan var sóknarleikurinn klaufalegur á köflum, en það sést best á því að alls töpuðust 24 boltar, en aðeins 13 hjá Tindastóli. Sem sagt, eins og stundum áður, einhver skortur á einbeitingu og áræðni þegar haldið er út á land. Reyndar virtist herbragð Kristins þjálfara Friðrikssonar heppnast varðandi dómarana, því hann kvartaði undan því í sjónvarpsviðtali að keflvísku útlendingarnir kæmust upp með að skrefa mikið. Dómararnir svöruðu kallinu og dæmdu alls 6 sinnum skref á þá Nick og Derrick. Ekki ætlum við þó að gagnrýna dómarana hér, þeir hafa erfiðu hlutverki að gegna í svona jöfnum leikjum og gera mistök eins og aðrir. Aðalatriðið er að þeir stjórni leiknum látlaust og reyni að láta leikinn "fljóta", ef svo má segja.
Nú er bara að halda heim á leið og taka sig saman í andlitinu fyrir oddaleikinn sem leikinn verður á þriðjudaginn kl. 19.15. Þar verður hart barist því Nick Boyd gæti verið klár í slaginn og munu þá Stólarnir vera enn sterkari. Mikið fjör framundan !!