Fréttir

Körfubolti | 6. janúar 2005

Tindastóll kemur í heimsókn í kvöld

Í kvöld hefst Intersportdeildinn aftur eftir jólafrí með leik Keflavíkur og Tindastóls.  Tindastól hefur átt erfitt uppdráttar það sem af er tímabils og aðeins unnið 3 leiki en tapað 8.  Nikola Cvjetkovic er farinn frá liðinu til Þórs á Þorlákshöfn en hann skoraði að meðaltali  16 stig með liðinu.  Kristnn Friðriksson er þó kominn aftur en verður ekki löglegur með liðinu fyrir en  30 jan. Ísak Einarsson er komin aftur heim og verður löglegur með Tindastól í kvöld, en Ísak lék með þeim 1996-2000 en hefur verðið að spila í Danmörku síðan.  Keflvíkingurinn Björn Einarsson leikur með Tindastóll, en Bjössi hefur verið meðlimur í trommusveit Keflavíkur síðustu ár.