Fréttir

Karfa: Karlar | 13. október 2010

Tippklúbburinn Lukkustrákar

Hleypt hefur verið af stokkunum Tippklúbb innan vébanda stuðningsmanna Keflavíkur, en sá klúbbur mun hittast fyrir hvern heimaleik hjá karlaliði Keflavíkur í vetur. Þar mun verða tippað á umferðirnar (1x2) og spjallað létt um málefni körfuboltans á Íslandi. Viðkomandi þarf að reiða af hendi 100kr. fyrir hvern leik sem hann tippar vitlaust á. Þessi peningur safnast svo í sjóð Tippklúbbsins, en markmið sjóðsins er að koma að uppbyggingu mannafla innan Keflavíkurliðsins. Þar má m.a. nefna fjármögnun á erlendum leikmanni.

Þeir sem hafa áhuga geta mætt upp í hús á næsta heimaleik og skráð sig við innganginn niðri. Hemmi Helga (660-1713) og Biggi Braga (618-5155) verða verndarar Tippklúbbsins í vetur.