Fréttir

Körfubolti | 17. desember 2004

Tölfræði kvenna

Við á heimasíðunni erum alltaf með einhverja könnun eða getraun í gangi á síðunni.  Það síðasta sem við spurðum um var hvaða leikmaður í kvennaflokki finnst þér hafa staðið sig best á tímabilinu.  180 svöruðu og flestir völdu Bryndísi Guðmundsdóttir og fast á hæla hennar var Birna Valgarðsdóttir. Bryndís er aðeins 16 ára og hefur leyst sitt hlutverk mjög vel og er tvímælalaust ein efnilegasta íþróttakonan í keflavík.  Staðreyndinn er sú að Keflavíkurliðið er taplaust það sem af er þessu tímabili. Liðið hefur náð frábærlega saman og það er að skila þeim þessum árangri. Þær eru  meistarar meistarana og Hópbílameistarar á þessu tímabili og mjög líklegar til að vinna þá titla sem í boði eru. Hér fyrir neðan er tölfræði fjögra stigahæstu leikmanna.

                                      L   2%    3%   V%   HF  Stig

Reshea Bristol                9  46,2   43,2  82,5    71  21,4
Birna I Valgarðsdótt       6  49,2   32,4   61,5   23  16,5
Bryndís Guðmundsdótt   9  50,7            67,7    70  10,3
Anna M Sveinsdóttir      9  44,3   36,4  83,3     61  12,1