Tölfræði okkar manna í góðum málum
Á lista yfir stigahæstu menn í Evrópukeppninni eru okkar menn í góðum málum. Nick Bradford trónir eins og kóngur á toppnum með 25 stig, Anthony Glover er í 9 sæti með 23.3 stig og Gunnar Euro Einarsson er 16 sæti með 20.5 stig. Glover er í 2 sæti yfir frákastara með 11.8 og Nick í því 10 með 9.7. Gunnar er 10 sæti yfir 3 stiga nýtingu með 55.6% og Maggi í því 24 með 48.6%. Nick er í 11 sæti yfir stoðsendingar með 5 að meðaltali. Listi þessi er yfir leikmenn allra liða sem leika í Bikarkeppni Evrópu alls 33 lið. Ekki slæmur árangur það!
Nick á toppnum í Evrópu.