Tölur úr Vesturdeildinni: Derrick er stigahæstur
Heimasíðan kíkti aðeins á tölur úr Vesturdeild Bikarkeppni Evrópu (A og B riðill). Upplýsingarnar eru góðar og við tókum saman það helsta sem að okkur snýr:
Hér er linkur inn á tölfræðina.
Leikmenn:
- Derrick er stigahæstur með 25,3 stig a.m.t., næstur kemur Nick með 22,5
- Magnús er í 13. sæti með 14,3 stig og Gunni Einars í því 20. með 13,0
- Falur er með bestu vítahittnina 100%! (14 af 14), Derrick er áttundi með 78% hittni
- Magnús hefur skoraði næst flestar 3ja stiga körfurnar, 3,3 amt, Gunnar er sjötti með 2,0, Frakkinn nr. 9, Legname hefur skorað flestar, alls 18 eða 3,6 amt.
- Okkar menn eru hins vegar ekki ofarlega á lista yfir 3ja stiga hittni, Gunnar er 11. með 42%, efstur er Bouteille frá Toulon (nr. 12) með 58% og Fernandes frá Madeira (sá sem Maggi rakst í nefið á) með 57%
- Derrick og Nick eru númer 2-4 yfir frákastahæstu menn með 8,8, líkt og Nate Johnston frá Madeira, efstur er Wilson frá Ovarense með 11,5
- Maggi er fjórði á lista yfir stoðsendingar með 5,0 og Gunnar og Falur eru nr. 13-14 með 4,0
- Gunni Einars er þriðji mesti þjófurinn með 2,5 stolna bolta, en Derrick, Nick, Jonni og Falur eru allir á topp 10
- Sem fyrr eru okkar menn grófir, Derrick, Nick og Jonni eru númer 2-4 með 3,8 villur á leik, á eftir Milling frá Toulon (risinn nr. 11)
Lið:
- Keflavík skorar flest stig allra 8 liðanna, 96,3 að meðaltali, næst kemur Ovarense með 85,5, Madeira er á botninum með 81,2
- Madeira og Dijon hafa bestu 3ja stiga hittnina, um 39 og 40%, en Keflavík er aðeins í sjötta sætinu með 32,4% hittni, 34 skot oní úr 105 tilraunum
- Keflavík er með næst bestu vítahittnina, 76,8%, Dijon eru bestir með 78,8
- Keflavík missti toppsætið í fráköstunum til Ovarense sem tekur 33,8 í leik, Keflavík er númer tvö með 33,5 - frábær árangur hjá lágvaxnasta liði deildarinnar!
- Keflavík leiðir síðan deildina (efstir af átta liðum) í stoðsendingum (25,8 í leik), stolnum boltum (12,0), og villum (23,8), en datt niður í annað sætið í töpuðum boltum (20,0), enda töpuðust aðeins 13 boltar í síðasta leik sem er frábært miðað við okkur :)