Fréttir

Körfubolti | 23. desember 2003

Tony Parker valinn íþróttamaður ársins í Frakklandi - tekinn fram yfir Thierry Henry og Zinedine Zidane!

Í fyrsta skiptið í franskri íþróttasögu var körfuboltamaður valinn íþróttamaður ársins. Fyrir valinu varð Tony Parker, bakvörðurinn knái hjá San Antonio Spurs, en hann átti stóran þátt í því að gera Spurs að meisturum s.l. sumar. Þetta er vitaskuld mikill heiður fyrir Parker sem og franskan körfubolta, því Frakkar eru miklir íþróttamenn og skarta m.a. fremstu knattspyrnumönnum heims um þessar mundir. Thierry Henry varð í 4ða sætinu í valinu og Zidane, knattspyrnumaður ársins, varð í því tíunda. Eunice Barber, frjálsíþróttakonan, varð í 3ja sæti, en franska kvennalandsliðið í handbolta í öðru sæti.