Fréttir

Körfubolti | 15. janúar 2005

Toppslagur í Intersportdeild á mánudagskvöld

Það verður sannkallaður toppslagur í Sláturhúsinu við Sunnubraut á mánudagskvöld kl 19.15, þegar Snæfellingar koma í heimsókn. Bæði lið hafa 18 stig eftir 13 umferðir. Það er ljóst að það lið sem vinnur leikinn mun eiga toppsætið alveg fyrir sig, eftir að Njarðvík tapaði frekar óvænt fyrir ÍR á fimmtudaginn. Annas urðu úrslit í 13 umferð eftirfarandi:  Hamar/Selfoss 106 Grindavík 97, Fjölnir 122 KFÍ 83, Tindastóll 79 Haukar 75, Skallagrímur 93 KR 107 og Njarðvík 87 ÍR 91.
Keflavík og Snæfell hafa mæst 2 sinnum í vetur, fyrst í deildinni þar sem Snæfell hafði betur 87-82 og í 16 liða úrslitum Bikarkeppni KKI og Lýsingar þar sem Keflavík hafði betur 102-86.
Snæfell er með mjög vel skipað lið með þá Hlyn Bærings, Pálma, Sigga Þorvalds og Magna. Liðið er komið með 2 nýja kana frá síðasta leik, þá Michael Ames og Calvin Clemmons.
Við hvetjum alla áhorfendur til að fjölmenna á leikinn og sjá alvöru toppslag. Torfi bróðir verður að sjálfögðu á staðnum og vonandi sem  flestir Snæfellingar með honum.  Áfram Keflavík.