Toulon tók Bourg í bakaríið 89-66 í dag
Það var engu líkara en að leikurinn gegn Keflavík hafi komið Toulon í stuð, því fyrr í dag léku þeir í PRO A deildinni gegn Bourg sem var ofar í deilinni, þótt munurinn væri ekki mikill. Toulon náði strax yfirhöndinni og vann öruggan 23ja stiga sigur, 89-66, og skaust upp í 8. sæti deildarinnar. Það er greinilega ekki auðvelt að sækja sigur í Espace 3000 höllina í Hyeres.