Toulon vann fyrsta leikinn í 8 liða úrslitunum
Eins og okkur er í fersku minni þá náði Toulon í 2. sæti B-riðils Vesturdeildar með sigri á Ovarense í síðustu umferð riðlakeppninnar. Andstæðingar þeirra í 8 liða úrslitunum er franska félagið Vichy þar sem Íslendingurinn Pavel Ermolinski leikur. Þessi félög fengu leyfi til að leika sína leiki á öðrum dögum en hin og fyrsti leikurinn var í kvöld á heimavelli Toulon í Espace3000 höllinni í Hyeres.
Skemmst er frá því að segja að Toulon hafði sigur í hnífjöfnum og spennandi leik. Staðan í hálfleik var 54-56 fyrir Vichy og síðan 74-76 við upphaf síðasta leikhluta. En Toulon voru sterkari í lokin og knúðu fram 2ja stiga sigur, 98-96, og standa nú vel að vígi, en það félag sem vinnur 2 leiki kemst áfram í undanúrslitin.
Bakvörðurinn knái, Jason Rowe, átti stórleik með 24 stig og 9 stoðsendingar, en Kaninn Floyd Miller var einnig öflugur með 20 stig. Risinn Kyle Milling skoraði 11 og tók 11 fráköst og svo var skyttan Legname einnig öflug með 16 stig. Ermó júníor var í hópnum en kom ekki við sögu.