Fréttir

Körfubolti | 16. desember 2004

Trommusveitin er frábær

Mörg félög eiga góða stuðningsmenn. Stundum metast menn um stuðningsmenn sína og margir telja stuðningsmenn síns félags þá bestu. Hið besta mál. Í Keflavík höfum við margs konar stuðningsmenn. Allir eru þeir mikilvægir. Meðlimir stuðningsmannaklúbbsins sem sitja niðri á bekkjunum eru kjölfesta í starfi félagsins því þeir greiða fyrir sætin sín allt árið um kring. Þeir eru sannkallaðir stuðningsmenn því stuðningur þeirra er ómetanlegur. En þeir eru stundum ekki sérlega háværir á leikjum, þannig er það nú bara. Meira að segja hefur stundum verið kvartað undan orðbragði sumra, en við förum ekki á taugum við það, þó vissulega viljum við að velsæmis sé gætt. En þeir eiga það líka til að komast í gírinn þegar spennan magnast og er þá fjör á pöllunum.

En við eigum líka aðra stuðningsmenn. Alvöru hvetjara á heimsmælikvarða. Þá er ég auðvitað að tala um Trommusveitina góðu og þeirra fylgismenn. Þeir eru engum líkir í að skapa stemmingu á leikjum. Þeir tromma í takt, taka fjörug sóló, syngja stuðningssöngva og hvetja aðra til dáða, jafnt áhorfendur sem leikmenn. Aldeilis frábærir stuðningsmenn. Að öðrum ólöstuðum eiga þeir stóran þátt í Keflavíkurliðinu og árangri þess, því leikmenn og aðrir aðstandendur kunna vel að meta þeirra óþreytandi framlag til leiksins.

Mig langar að þakka þeim fyrir frábært framlag til körfunnar í Kef og treysti því að þeir, jafnt sem aðrir stuðningsmenn, haldi sínu striki sem lengst. Með frábærri frammistöðu eru þeir orðnir ómissandi partur af Sláturhúsastemmingunni sem gerir andstæðingum enn erfiðara um vik. Og einnig er gaman er að sjá þá á útileikjum, t.d. gegn Njarðvík um daginn, en þar voru þeir í essinu sínu, að vanda. Það er hverju félagi ómissandi að hafa stuðningsmenn sem þessa, og hverjum leik upplyfting að fá slíka kappa á pallana.

Kærar þakkir félagar

Við styðjum Keflavík ...bamm baramm bamm bamm . . . .við styðjum Keflavík.....baaaaramm bamm bamm bamm bamm . . . osfrv.....

Kveðja,
Hrannar.