Tryggja Keflavíkurstúlkur sér deildarmeistaratitilinn í kvöld?
Topplið Keflavíkur verður deildarmeistari í Domino´s deild kvenna í kvöld hafi þær sigur á Snæfell. Leikurinn hefst kl. 19.15 í Toyotahöllinni en ef sigur vinnst hjá heimakonum fá þær deildarmeistaratitilinn afhentan.
Keflavík hefur 40 stig á toppi deildarinnar og hafa leikið 23 leiki og hafa betur innbyrðis gegn Snæfell, hafa unnið þrjár deildarviðureignir gegn Hólmurum. Snæfell er með 38 stig í 2. sæti deildarinnar og hafa leikið 25 leiki. Sigur hjá Keflavík í kvöld eykur forskot liðsins upp í fjögur stig á toppi deildarinnar og þá gæti Snæfell aðeins jafnað að því loknu. Svo til að Snæfell verði deildarmeistari verður liðið að ná tveggja stiga forystu á Keflavík í deildartöflunni þar sem Keflavík hefur betur innbyrðis
Frétt tekin af hinn frábæru síðu - www.karfan.is