Fréttir

Körfubolti | 16. desember 2003

Tveir leikir eftir í B-riðlinum og enn getur Keflavík lent í 1., 2., eða 3. sæti !!!

Merkilegt nokk, aðeins tveir leikir eftir í riðlinum og allt ennþá opið upp á gátt. Keflavík heimsækir Madeira á fimmtudaginn og Toulon fer til Ovarense. Skoðum mögulega niðurstöðu fyrir Keflavík:

Keflavík lendir í 3ja sæti ef við töpum fyrir Madeira og Toulon vinnur Ovarense. Þá erum við jafnir að stigum og Toulon (með 9 stig) og þeir hafa innbyrðis vinningin, unnu okkur með 16, en við unnum þá með 4. Ovarense yrði í fyrsta (með 10) og Madeira í því neðsta með 8.

Keflavík lendir í öðru sæti ef við töpum fyrir Madeira og Ovarense vinnur Toulon. Þá erum við einir í öðru sætinu með 9 stig. Ovarense yrði í fyrsta með 11, Madeira í þriðja með 8 eins og Toulon, en Madeira hefur vinningin innbyrðis.

Keflavík lendir líka í öðru sæti ef við vinnum Madeira og Ovarense vinnur Toulon. Þá erum við einir í öðru sætinu með 10 stig, Övarense í fyrsta með 11, Toulon í þriðja með 8 og Madeira í fjórða með 7.

Keflavík lendir í fyrsta sæti ef við vinnum Madeira og Toulon vinnur Ovarense. Þá erum við með 10 stig, líkt og Ovarense, en höfum vinningin innbyrðis, Toulon í þriðja með 9 og Madeira í fjórða með 7.

Sem sagt, ansi mikið í spilunum ennþá. Nú vonumst við eftir sigri á Madeira og þá er heimavöllurinn tryggur í 8 liða úrslitunum. En "just in case", þá vonum við að Ovarense vinni Toulon ef við töpum . . . .

  • Ovarense getur lent í fyrsta eða öðru sætinu (skiptir ekki öllu, heimavöllurinn tryggur)
  • Keflavík getur lent í fyrsta, öðru eða þriðja
  • Toulon getur lent í öðru eða þriðja (annað sætið mikilvægt, því munu þeir berjast)
  • Madeira getur lent í þriðja eða fjórða

Nuff said . . . bíðum spennt!!